Um leigutímabilið
Um leigutíma
Leigutími hefst kl 16:00 á komudegi og lýkur kl 12:00 á brottfarardegi. Það er áríðandi að leigutaki gefi upp flugfélag, flugnúmer og tíma.
Um ástand eignarinnar
Hrein Eignaumsjón afhendir lykla að húseigninni á leigustað. Fer yfir þá hluti sem leigjandi þarf að vita um eignina. Brýnt er fyrir leigutaka að láta strax vita ef eitthvað er ábótavant við aðbúnað eða bilað.
Við brottför er farið yfir ástand eignarinnar og er þá leigutaka skylt að upplýsa hvort eitthvað hafi skemmst á meðan dvöl hans stóð.
Búnaður
Allur almennur búnaður í húseignunum er miðaður við þann fjölda sem skráður er á viðkomandi eign.
Tilkynna skal Hrein Eignaumsjón ef einhverju er ábótavant eða bilað.
Viðskilnaður og lokaþrif.
Við lok leigutíma ber leigutaka að upplýsa um skemmdir og það sem aflaga hefur farið, meðan á dvöl hans hefur staðið.
Leigutaki skilar eigninni þannig :
- Öll eldhúsáhöld og tæki séu hrein.
- Tæma allt rusl
- Setur þvott í eina vél og setur í gang.
Kveðja
Hrein Eignaumsjón
Comments