Signed in as:
filler@godaddy.com
Signed in as:
filler@godaddy.com


við Agla Egilsdóttir og Arnljótur Arnarson, oftast kallaður Arri, nema þegar hann er skammaður.
Agla er Ólsari,en Arri uppalinn Hafnfirðingur og FH-ingur.
Það var árið 2002 eftir að hafa náð að selja húsið í Ólafsvík, sem ákvörðun var tekin að flytja til Spánar. Hugmyndin var að vera hér í eitt ár á meðan tekin væri ákvörðun um hvar á stóra Hafnarfjarðarsvæðinu framtíðinni yrði fundin staður.
Það var pilsfaldur móður Öglu sem dró fjölskylduna hingað að til Spánar. Þetta eina ár er nú orðið að 24, svo það hlýtur því að vera eitthvað gott og notalegt við svæðið. Allavega áttaði Agla sig á því að til væru jafnvel betri staðir en Ólafsvík.
Stóran hluta þessa tímabils hefur Arri verið á sjó á Íslandi, og var þá gjarnan annan hvern mánuð heima í fríi. Á meðan hélt Agla öllu gangandi heima, sá um börnin, heimilið og vann oft með því. Tók að sér að hugsa um nokkur hús og þríf þegar þess þurfti.
Það lá því nokkuð ljóst fyrir að þegar Arri hætti á sjónum að skella sér út í þennan rekstur.
Copyright © 2026 Hrein Eignaumsjón - All Rights Reserved.