Signed in as:
filler@godaddy.com
Signed in as:
filler@godaddy.com

Borgin Orihuela einkennist af mörgum þéttbýliskjörnum og stórum þéttbýlissvæðum. Sveitafélagið skiptist að mestu leiti í tvær þéttbýlisstöðvar sem eru borgin Orihuela og strandsvæðið Orihuela Costa, sem liggur ekki að borgarsvæðinu. Íbúafjöldinn sem sveiflast töluvert eftir árstíma og verður mikill á sumrin sem og töluvert um jól og páska.
Árið 2000 voru íbúar Orihuela (allt yrirráðasvæðið) 53.478. Þar af var fjöldi Orihuela Costa um 5645 eða rúmlega 10,5% bæjarfélagsins. Með mikilli aukningu ferðaþjónustu á Costa Blanca, og sérstaklega mikilli aukningu á fjárfestingu í öðru heimili, jókst íbúafjöldi Orihuela Costa vel yfir 29.000 árið 2010 og var þá eitthvað á milli 36%- 38 % af heildar íbuafjölda Orihuela svæðisins. Hins vegar með sprungni húsnæðisbólu og efnahagskreppu sem fylgdi í kjölfarið, fluttu margir erlendir íbúar frá Orihuela Costa og snéru aftur til upprunalands síns.
Hafa skal í huga að þessar tölur eru byggðar á fjölda skráðra íbúa við ströndina, en mikilvægt er að hafa í huga að margir útlendingar sem búa í Orihuela Costa eru ekki opinberlega skráðir. Mikill munur getur verið á raunverulegum íbúum og þeim sem eru skráðir, því þó að skráðir íbúar séu um 22.000 þá er talið við miðað við vatnsnotkun á lágannatíma, að Orihuela Costa hýsi allt að 45.000 manns.
Íbúatala Sveitarfélagsins Orihuela var um 89.000 árið 2025. Þar af 30.171 í Orihuela Costa, sem er á milli 32- 34% íbúa.
Orihuela Costa er einn helsti áfangastaður fyrir annað heimili á öllu Costa Blanca svæðinu. Það er þéttbýlisstaður sem samanstendur að miklu leiti af stórum íbúðagörðum sem er aðallega í eigu fóks frá mið og norður Evrópu.
Skipting íbúafjöldans í Orihuela eftir þjóðernum á fyrrihluta ársins 2026 er sem hér segir:
Þetta sýnir fjölbreytt samfélag með sterkan spænskan meirihluta en einnig mikinn fjölda erlendra íbúa, einkum frá Bretlandi og öðrum löndum.
Opinberar tölur eru ekki fyrir hendi um fjölda Íslendinga. Með leit á netinu má finna að áætlaður fjöldi Íslendinga með fasta búsetu á Costa Blanca svæðinu sé á milli 250-300.
1. Maí 2026

Í Orihuela Costa er hálfþurrt loftslag með úrkomu sem er um 260 lítrar á fermetra á ári og meðalhiti 18 °C. Hagstætt loftslag og notalegt hitastig allt árið með nokkrum rigningardögum er ein helsta ástæða þess að fólk laðast að svæðinu. Í því sambandi má þó ekki draga úr segulafli fjölbreytts úrval golfvalla.
Á sandölum og ermalausum bol
What's something exciting your business offers? Say it here.

Copyright © 2026 Hrein Eignaumsjón - All Rights Reserved.